– Hvað á að skrifa í kort?

Stundum er erfiðast að finna réttu orðin – sérstaklega þegar við viljum segja eitthvað fallegt og einlægt.

Vantar þig orð í kortið? 🤍
Hér finnur þú fallegar, einfaldar og einlægar hugmyndir fyrir mismunandi tilefni.

✔ Afmæli
✔ Skírnarveisla/Nafnaveisla
✔ Ferming
✔ Samúðarkveðjur

Þú mátt nota textana eins og þeir eru eða laga þá að þínum eigin orðum.

Lýsing

HUGMYNDIR AÐ TEXTA

Afmæli

• Til hamingju með daginn 🤍
• Ég óska þér yndislegs afmælis og alls hins besta framundan
• Megi dagurinn þinn vera fullur af gleði og fallegum stundum
• Til hamingju með daginn! Njóttu hans í botn.
• Sendi þér hlýjar afmæliskveðjur
• Innilegar hamingjuóskir með [aldur] ára afmælið þitt!
• Bestu kveðjur á afmælidaginn þinn!
• Elsku þú! Hjartans hamingjuóskir með daginn þinn!


Skírn / Nafnagift / Nýburi

• Innilegar hamingjuóskir með litla kraftaverkið 🤍
• Innilega til hamingju með nýja gullmolann þinn/ykkar
• Megi lífið vera fullt af kærleika og gleði
• Til hamingju með daginn og fallega framtíð framundan
• Dýrmæt stund og yndislegt upphaf 
• Ég óska ykkur alls hins besta í nýju hlutverki
• Hjartans hamingjuóskir með litlu snúlluna!
• Ég hlakka svo til að sjá hann/hana vaxa upp úr grasi


Ferming

• Innilegar hamingjuóskir með fermingardaginn 🤍
• Megi framtíðin vera björt og full af tækifærum
• Til hamingju með daginn og njóttu hans til fulls
• Fallegur áfangi og spennandi tími framundan
• Ég óska þér alls hins besta í lífinu
• Til hamingju með fermingardaginn þinn flotta/i þú! Njóttu sem allra best.


Samúð

• Innilegar samúðarkveðjur 🤍
• Hugur minn er hjá þér á þessum erfiða tíma
• Sendi þér hlýjar hugsanir og styrk
• Megi minningarnar veita þér huggun
• Hugsa til þín 🤍
• Mínar dýpstu samúðarkveðjur til þín og þinni
• Ég samhryggist þér/ykkur innilega og sendi ykkur hlýjar hugsanir á þessum erfiðu tímum


UPPLÝSINGAR

• Þetta er frítt efni 🤍
• Þú mátt nota textana að vild
• Fullkomið til að vista eða hafa við höndina


🤍 Vantar fallegt kort með kveðjunni?
Skoðaðu minimalísk tækifæriskort frá by Beta S

👉 Tækifæriskort