Skilmálar

By Beta S. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða ef hætt er að bjóða upp á tilteknar vörur eða vörutegundir fyrirvaralaust. By Beta S. áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis.

Vörur

Flestar þær vörur sem eru sérpantaðar eru handgerðar og þ.a.l. eru engar tvær vörur eins. Reynt er að sýna myndir af vörunum eins líkar og þær eru í raun og veru. Ekki er þó hægt að fullyrða um að litir eða aðrir eiginleikar séu nákvæmlega eins á myndum eins og með berum augum. Smávægileg frávik í lit, stærð eða áferð teljast ekki galli. Samskipti milli By Beta S. og viðskiptavinar er því afar mikilvægur liður í ferlinu til að fá sem nákvæmastar upplýsingar og ábendingar.

Verð

Öll verð í vefverslun eru birt með fyrirvara um villur og breytingar. By Beta S áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

Öll verð eru án virðisaukaskatts þar sem starfsemin er virðisaukaskattslaus.

Greitt á netinu

Hægt er að greiða með millifærslu, Aur eða Netgíró. Ef valin er millifærsla eða Aur þarf greiðsla að berast innan 24 klukkustunda frá pöntun, annars fellur pöntunin sjálfkrafa úr gildi.

Afhending

Vörur eru eingöngu afhentar með sjálfsafhendingu á heimilisfangi framleiðslu.
Viðskiptavinur fær tölvupóst þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Afhending fer fram samkvæmt samkomulagi um tíma.
Áhætta af vöru flyst yfir til kaupanda við afhendingu.

Upplýsingar viðskiptavina

Við pöntun fyllir viðskiptavinur upp persónuupplýsingar s.s. nafn, netfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandi að þessar upplýsingar fari í viðskiptavina gagnagrunn By Beta S.. By Beta S. ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og verði undir engum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Vöruskil

Skilaréttur gildir ekki um sérpantaðar eða sérmerktar vörur samkvæmt 16. gr. laga um neytendasamninga. Öðrum vörum er hægt að skila innan 14 daga gegn endurgreiðslu svo lengi sem hún er í sama ásigkomulagi og við afhendingu. Vinsamlegast hafið samband við By Beta S. varðandi spurningar.

Vefkökur

Frekari upplýsingar varðandi notkun By Beta S. á vefkökum má sjá hér.

Aðrar spurningar

Ekki hika við að hafa samband ef upp vakna spurningar. Hægt er að senda email á bybs@bybs.is eða með því að smella á þessa slóð.
 


  

0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tómTil baka í verslun