Um bybs.is
By Beta S. var stofnað árið 2024 af, Elísabetu Ósk (Betu Sverris). Vefverslunin varð til úr ástríðu fyrir hönnun, sköpun og fallegum hlutum fyrir heimili og tilefni með því markmiði að koma hugmyndum og sköpun minni á framfæri.
Ég er menntuð í sálfræði og hef alla mína tíð verið mikið fyrir því að skapa og búa eitthvað til. By Beta S. er sambland af þeim heimi – hönnun, handverki og hugmyndum sem verða að raunverulegum hlutum.
Hugmyndin að By Beta S. kviknaði þegar ég ferðaðist um Krít árið 2022.
Þar kviknaði enn sterkari áhugi á handunninni hönnun, náttúrulegum formum og einfaldleika í hlutum.
Í dag býður By Beta S. upp á fjölbreytt úrval af vörum, meðal annars:
-
- Prentverk
-
- 3D prent
-
- Hluti fyrir heimili
Nafnið By Beta S. stendur fyrir „eftir Betu S.“
Ég hannaði og byggði vefsíðuna sjálf, með mikilli aðstoð frá föður mínum, sem hefur frá upphafi verið minn helsti peppari. Fyrir það er ég óendanlega þakklát.
Ég nota keypta graffík sem hönnuð er af erlendum höfundum og hef því leyfi til að nota hana. Margar vörur eru unnar í samráði við kaupanda.
Hægt er að óska eftir sérlausnum varðandi letur, texta, liti og útfærslur. Ekki hika við að senda mér fyrirspurn ef þú ert með hugmynd af breytingum á vöru sem hentar þér. Ég passa að þjónustan sé alveg sniðin að þínum þörfum.
By Beta S. er lifandi hönnunarverkefni sem stækkar hægt og rólega. Nýjar vörur og vöruflokkar bætast reglulega við.
Ég starfa einnig annars staðar og svara skilaboðum eins fljótt og auðið er.
Best er að hafa samband í gegnum netfangið bybs@bybs.is eða á samfélagsmiðlum.
Verið hjartanlega velkomin.
– Elísabet