Skilastefna
Ég vil að þú sért ánægð/ánægður með vöruna þína.
Samkvæmt lögum um fjarsölu hefur neytandi rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru, án þess að tilgreina ástæðu.
Skilyrði fyrir skilum
- Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi
- Skila þarf vörunni innan 14 daga frá móttöku
- Kaupandi ber kostnað af endursendingu nema annað sé sérstaklega tekið fram
Til að nýta sér skilafrest skal senda tölvupóst á bybs@bybs.is innan 14 daga frá móttöku.
Sérsniðnar og handgerðar vörur
Vörur sem eru sérhannaðar (t.d. með nafni, sérstöku vali á texta, lit eða annarri persónusniðinni hönnun) eru ekki endurgreiddar nema um galla sé að ræða.
Handgerðar vörur geta haft eðlileg smávægileg frávik þar sem hver vara er unnin sérstaklega.
Prent og hönnunarvörur
Prentverk og aðrar hönnunarvörur eru endurgreiddar samkvæmt almennum skilyrðum, að því gefnu að þær séu ónotaðar og í upprunalegu ástandi.
Stafrænar vörur (ef við á)
Stafrænum vörum er almennt ekki hægt að skila eftir að niðurhal hefur átt sér stað.
Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð eða skemmd við móttöku skal hafa samband innan 7 daga frá móttöku. Við metum málið og bjóðum viðeigandi lausn (endursending, viðgerð eða endurgreiðslu).
Endurgreiðslur
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup, innan hæfilegs tíma frá samþykktum skilum.
Hafðu samband: bybs@bybs.is